Bio Smoothie

BIO SMOOTHIES frá Rudolfs eru hágæða smoothie-drykkir, 100% lífrænir og innihalda einungis blönduð ber, ávexti og safa. Í þeim eru engin litarefni eða gervibragðefni, enginn viðbættur sykur og þeir eru án allra rotvarnarefna.

 

Drykkirnir bera lífræna vottun Græna laufsins frá Evrópusambandinu og eru framleiddir samkvæmt ströngustu öryggisstöðlum. Þeir bera því alþjóðlegu matvælaöryggisvottanirnar BRC og FSSC 22000.