Alias frægir

Frægt fólk úr bíómyndum, bókmenntum, samtímanum og sögunni.

Fyrir hversu marga:
2-6 spilarar

Hvaða tíma tekur spilið:
30+ mínútur

Aldursbil:
12+ ára

Lýsing:

Það kannast flestir við Alias-spilin, en kannast þú við frægt fólk úr mannkynssögunni, þekkta tónlistarmenn eða leikara sem sett hafa svip sinn á tilveruna? Bókmenntir og kvikmyndir skarta mörgum frægustu persónum allra tíma og flest okkar kannast við einhverjar íþrótta- eða hasarmyndahetjur, jafnvel framsýna brautryðjendur sem hafa sett mark sitt á heiminn.