Íslenska spurningaspilið

Hvað ættu allir að vita um landið sitt?

Fyrir hversu marga:
2-6 spilarar

Hvaða tíma tekur spilið:
30+ mínútur

Aldursbil:
12+ ára

Lýsing:

Hvað veistu um íslenska íþróttamenn? Þekkir þú sögu lands og þjóðar? Ert þú vel að þér í dægurmálum og íslenskri tónlist?Yfirgripsmikið spurningaspil í margvíslegum flokkum með skemmtilegum spurningum sem færa þér og þínum margar gæðastundir í fjörugri keppni.

Í spilinu eru 800 fjölvalsspurningar í sex flokkum sem fjalla eingöngu um Ísland og íslensk málefni.

Ef þú ert ekki viss getur þú alltaf giskað á A, B, C eða D.

Nú getur þú att kappi við vini og ættingja og skorið endanlega úr um það hver sé klárastur!